Like Our Facebook Page

Follow Our Tweets

Prédikun

 9. Sunday in Ordinary Time

AMDG

Með hliðsjón af Guðspjallinu í dag, skulum við taka til smá íhugunar hina tvo grunni að húsbyggingum, sem Jesús talar um og okkur er í sjálfsvald sett að velja á milli samkvæmt okkar frjálsa vilja. Valið er okkar.

 Jesús, hins vegar, veitir okkur leiðsögn og lýsingu á því hvernig undirstaðan á einu húsinu mun stuðla að því að það stendur allt af sér, meðan hin undirstaðan leiðir til hruns.

 "Hver sem heyrir þessi orð mín og breytir eftir þeim, sá er líkur hyggnum manni, er byggði hús sitt á bjargi…Hver sem heyrir þessi orð mín og breytir ekki eftir þeim, sá er líkur heimskum manni, er byggði hús sitt á sandi" (Mt 7:24-25; 26).

 "Nú skall á steypiregn, vatnið flæddi, stormar blésu og buldu á því húsi" (Mt 7:25). En hús hins hyggna manns féll ekki, því það var grundvallað á bjargi. Hús heimska mannsins féll hins vegar, og gjöreyðilagðist.

 Skilgreiningin á þessari hyggilegu kennisetningu Jesú er mjög einföld: Að hlýða boðskap Hans. Að breyta samkvæmt kenningum Hans. Að forðast syndugt líferni og að lifa réttsýnu lífi. Þessu hlutverki ber öllum kaþólskum kristnum mönnum að gegna.

 Með þessa kennisetningu í huga vaknar ósjálfrátt sú spurning, hversu mörg okkar byggja hús sitt á kletti og hversu mörg á sandi? Eða, með öðrum orðum:

 Hversu mörg okkar lifa í samræmi við boðskap Krists og hversu margir heyra orð Hans en eru fljótir að gleyma, því áhuginn er ekki fyrir hendi að leita sér þeirrar fræðslu sem gagnast okkur í ljósi eilífðar (sub specie aeternitatis), hvernig bregðast skuli við í verki, og lífinu lifað svo Guði sé þóknanlegt.

 Mörg ykkar hafa eflaust heyrt getið um Mahatma Gandhi. Hann er opinberlega heiðraður í Indlandi sem faðir þjóðarinnar; afmælisdagur hans er annar október, og er hann haldinn hátíðlegur sem þjóðhátíðardagur Indlands og um allan heim sem Alþjóðlegur dagur án ofbeldis.

 Mahatma Gandhi var ekki kristinn. Og sú var tíðin að hann var spurður álits á Kristi og kristni. Hann svaraði því til með eftirfarandi orðum: "Ég hafna ekki Kristi. Það, sem að er, er að svo margir kristnir eru svo ólíkir Kristi"…"Ef hinir kristnu myndu bara lifa í samræmi við kenningar Krists í raun," hversu öðruvísi og betra væri þá ekki líf þeirra.

 Þessi skortur á að breyta í samræmi við vilja Guðs, eins og Jesús boðar, er því miður of oft tilfellið í lífi svo margra. Þeir byggja hús sitt á sandi, sem þýðir að trú þeirra endurspeglast ekki í verki.

 En það er einmitt þessi skortur sem vakti mig til umhugsunar og olli því að ég finn mig knúinn til að leggja sérstaka áherslu á að við veitum varnaðarorðum Jesú athygli í guðspjalli dagsins og hyggjum að líferni okkar, en þar segir:

 "Hver sem heyrir þessi orð mín og breytir ekki eftir þeim, sá er líkur heimskum manni, er byggði hús sitt á sandi…Hver sem heyrir þessi orð mín og breytir eftir þeim, sá er líkur hyggnum manni, er byggði hús sitt á bjargi" (Mt 7: 25; 26).

 Að byggja hús sitt á Kristi og í anda Krists þýðir að byggja hús sitt í samráði við þann, sem þekkir okkur betur en jafnvel við sjálf og sem elskar okkur og metur okkur þrátt fyrir ófullkomleika okkar: "Þú ert dýrmætur í mínum augum og mikils metinn og … ég elska þig" (Jes 43:4).

 Það þýðir, að byggja hús sitt í samráði við þann, sem stöðugt horfir inn í sært hjarta okkar og segir á stundu iðrunar okkar: "Ég sakfelli þig ekki heldur. Far þú. Syndga ekki framar"(sbr. Jh 8:11).

 Það þýðir, að byggja hús sitt í samráði við þann, sem frá krossinum teygir út arma sína og endurtekur um alla eilífð: "Fyrir þig, Ó maður, fórna ég lífi mínu af því ég elska þig."

 Í stuttu máli sagt, að byggja hús sitt eða líf sitt á Kristi þýðir að vilji Hans er grundvöllurinn og uppsprettan að öllum okkar þrám, ílöngunum, draumum, metnaði og fyrirætlunum. Það þýðir að strengja eftirfarandi heit:

 "Drottinn, á lífsgöngu minni vil ég ekki gera neitt það sem brýtur gegn vilja þínum, því þú einn veist hvað mér er fyrir bestu, aðeins 'þú hefur orð eilífs lífs'" (sbr. Jh 6:68).