St. Jósefskirkja

  • Full Screen
  • Wide Screen
  • Narrow Screen
  • Increase font size
  • Default font size
  • Decrease font size

Föstuboð

E-mail Print PDF

Samkvæmt kirkjulögum er öllu rómversk-kaþólsku fólki frá 18 til 60 ára aldurs skylt að fasta á bindandi föstuboðsdögum. Sjúklingar eru undanþegnir föstu. Bindandi föstuboðsdagar eru öskudagur og föstudagurinn langi. Fasta er það þegar aðeins er neytt einnar fullkominnar máltíðar á dag. Þó er ekki bannað að neyta smávegis af fæðu tvisvar að auki.

Allir trúaðir, sem náð hafa 14 ára aldri, eiga að gera yfirbót alla föstudaga, einkum á lönguföstu. Velja má um eftirtaldar leiðir:

1. Forðast neyslu kjöts eða annarrar fæðu.

2. Forðast áfenga drykki, reykingar eða skemmtanir.

3. Gera sérstakt átak til að biðja:
– með þátttöku í heilagri messu
– með tilbeiðslu hins alhelga altarissakramentis
– með þátttöku í krossferilsbænum á föstudögum í lönguföstu.

4. Fasta algjörlega oftar en skylt er og gefa það fé sem þannig sparast til þeirra sem þess þurfa.

5. Sýna sérstaka umhyggju þeim, sem fátækir eru, sjúkir, aldraðir, farlama eða einmana.

Ef föstuboð er vanrækt einn föstudag er ekki litið á það sem synd.
Þó ber að minna á að yfirbót er hluti af lífi kristinna manna og þeim ber skylda til að ástunda hana, ekki hvað síst á föstutímanum.

You are here: