Like Our Facebook Page

Follow Our Tweets

ANNAR SUNNUDAGUR Í FÖSTU

Fyrsti ritningarlestur

1M 15, 5–12. 17–18

Guð gerir sáttmála við Abraham hinn réttláta.

Kafli úr fyrstu Mósebók

Á þeim dögum leiddi Guð Abram út og mælti: “Lít þú upp til himins og tel þú stjörnurnar, ef þú getur talið þær.” Og hann sagði við hann: “Svo margir skulu niðjar þínir verða.” Og Abram trúði Drottni, og hann reiknaði honum það til réttlætis.

Þá sagði hann við hann: “Ég er Drottinn, sem leiddi þig út frá Úr í Kaldeu til þess að gefa þér þetta land til eignar.” Og Abram mælti: “Drottinn Guð, hvað skal ég hafa til marks um, að ég muni eignast það?” Og hann mælti við hann: “Fær mér þrevetra kvígu, þrevetra geit, þrevetran hrút, turtildúfu og unga dúfu.” Og hann færði honum öll þessi dýr og hlutaði þau sundur í miðju og lagði hvern hlutinn gegnt öðrum. En fuglana hlutaði hann ekki sundur. Og hræfuglar flugu að ætinu, en Abram fældi þá burt.

Er sól var að renna, leið þungur svefnhöfgi á Abram, og sjá: Felmti og miklu myrkri sló yfir hann.

En er sól var runnin og myrkt var orðið, kom reykur sem úr ofni og eldslogi, er leið fram á milli þessara fórnarstykkja.

Á þeim degi gjörði Drottinn sáttmála við Abram og mælti: “Þínu afkvæmi gef ég þetta land, frá Egyptalandsánni til árinnar miklu, árinnar Efrat.”

Orð Drottins. Svar: Þökk sé Guði.

Víxlsöngur úr Davíðssálmum

Sl 27, 1. 7–8. 9abcd. 13–14 Sv. 1a

Svar: Drottinn er ljós mitt og fulltingi.


Drottinn er ljós mitt og fulltingi,

hvern ætti ég að óttast?

Drottinn er vígi lífs míns,

hvern ætti ég að hræðast? S.


Heyr, Drottinn, ég hrópa hátt,

sýn mér miskunn og svara mér!

Mér er hugsað til þín, er sagðir: “Leitið auglitis míns!”

Ég vil leita auglitis þíns, Drottinn. S.


Hyl eigi auglit þitt fyrir mér,

vísa þjóni þínum eigi frá í reiði.

Þú hefir verið fulltingi mitt,

hrind mér eigi burt. S.


Ég treysti því að fá að sjá gæsku Drottins

á landi lifenda!

Vona á Drottin, ver öruggur og hugrakkur,

já, vona á Drottin. S.


Annar ritningarlestur

Fl 3, 17–4, 1

Kristur mun gera oss líka dýrðarlíkama sínum.

Kafli úr bréfi heilags Páls postula til Filippímanna

Bræður, breytið allir eftir mér og festið sjónir yðar á þeim, sem breyta eftir þeirri fyrirmynd, er vér höfum yður gefið. Margir breyta, – ég hef oft sagt yður það og nú segi ég það jafnvel grátandi –, eins og óvinir kross Krists. Afdrif þeirra eru glötun. Guð þeirra er maginn, þeim þykir sómi að skömminni og þeir hafa hugann á jarðneskum munum. En föðurland vort er á himni og frá himni væntum vér frelsarans, Drottins Jesú Krists. Hann mun breyta veikum og forgengilegum líkama vorum og gjöra hann líkan dýrðarlíkama sínum. Því hann hefur kraftinn til að leggja allt undir sig.

Þess vegna, mínir elskuðu og þráðu bræður, gleði mín og kóróna, standið þá stöðugir í Drottni, þér elskuðu.

Orð Drottins. Svar: Þökk sé Guði.

Guðspjallsvers

Sbr. Mt 17, 5

R.: Lof og dýrð sé þér, Drottinn Jesús, nú og að eilífu.

Úr björtu skýi heyrðist rödd Föðurins og sagði: “Þessi er minn elskaði Sonur, sem ég hef velþóknun á. Hlýðið á hann!” R.:

Guðspjall

Lk 9, 28–36

Er hann var að biðjast fyrir, varð yfirlit ásjónu hans annað.

X Kafli heilags guðspjalls eftir Lúkasi.

S. Dýrð sé þér, Drottinn.

Á þeim tíma tók Jesús með sér þá Pétur, Jóhannes og Jakob og gekk upp á fjallið að biðjast fyrir. Og er hann var að biðjast fyrir, varð yfirlit ásjónu hans annað, og klæði hans urðu hvít og skínandi. Og tveir menn voru á tali við hann. Það voru þeir Móse og Elía. Þeir birtust í dýrð og ræddu um brottför hans, er hann skyldi fullna í Jerúsalem. Þá Pétur og félaga hans sótti mjög svefn, en nú vöknuðu þeir og sáu dýrð hans og mennina tvo, er stóðu hjá honum. Þegar þeir voru að skilja við Jesú, mælti Pétur við hann: “Meistari, gott er, að vér erum hér. Gjörum þrjár tjaldbúðir, þér eina, Móse eina og Elía eina.” Ekki vissi hann, hvað hann sagði.

Um leið og hann mælti þetta, kom ský og skyggði yfir þá, og urðu þeir hræddir, er þeir komu inn í skýið. Og rödd kom úr skýinu og sagði: “Þessi er Sonur minn, útvalinn, hlýðið á hann!” Er röddin hafði talað, var Jesús einn. Og þeir þögðu og sögðu á þeim dögum engum frá neinu því, sem þeir höfðu séð.

Orð Drottins. Svar: Lof sé þér, Kristur.