St. Jósefskirkja

  • Full Screen
  • Wide Screen
  • Narrow Screen
  • Increase font size
  • Default font size
  • Decrease font size

Jósefskirkjusaga og Sóknarprestar

E-mail Print PDF

Jósefskirkjusaga

Árið 1925 reistu Jósefssystur spítala ásamt kapellu í Hafnarfirði. Kapellan var blessuð 5. september 1926 af hinum postullegum leiðtoga Marteini Meulenberg SMM. Hún var einnig safnaðarkirkja nýstofnaðrar Jósefssóknar í Hafnarfirði.

Árið 1987-1988 urðu Jósefssystur að selja spítalann og kapelluna. Reisa varð nýja kirkju. Séra Hjalti Þorkelsson, sóknarprestur í Hafnarfirði, hafði umsjón með að byggð var kirkja með áföstum prestbústað og safnaðarsal á Jófríðarstöðum. Arkitekt var Knútur Jeppesen. Þann 3. júlí 1993 vígði Alfreð Jolson biskup hina nýju St. Jósefskirkju.

Árið 1997 voru settar upp "krossferilsmyndir" eftir svissnesku listakonuna Bradi Barth á kirkjuveggina.

Sóknarprestar

Stutt ágrip

Í byrjun febrúar 1922 keypti Meulenberg, prestur í Landakoti, jörðina Jófríðarstaði í Hafnarfirði fyrir hönd Montfortreglunnar. Skömmu síðar seldi hann Jósefssystrum hluta eignarinnar.

Fyrsti kaþólski presturinn í Hafnarfirði var séra Michael Parren. Hann kom þangað 1924, og var aðstoðarmaður hans bróðir Jósef. Þá var messað í lítilli kapellu sem útbúin hafði verið í íbúðarhúsinu á Jófríðarstöðum.

1. Michael H.D. Parren, fæddist í Gulpen í Hollandi 4. ágúst 1889, gekk í Montfortregluna 1909, prestvígður 29. maí 1915, andaðist í Hollandi 12. maí 1953.

Hann starfaði í Reykjavík og Hafnarfirði 1924-1926.

Árið 1924 hófst smíði Jósefsspítala í Hafnarfirði eftir teikningu Guðjóns Samúelssonar sem einnig teiknaði Kristskirkju í Landakoti. Spítalinn var vígður við hátíðlega athöfn 5. september 1926. Þetta sama ár var Hafnarfjörður gerður að sérstakri sókn, og var fyrsti prestur hennar séra Jósef Dreesen.

2. Jósef J. Dreesen, fæddist í Maastricht í Hollandi 17. nóvember 1889, gekk í Montfortregluna 1909, prestvígður 29. maí 1915, andaðist á Íslandi 30. maí 1954.

Hann starfaði í Hafnarfirði 1926-1936.

Haustið 1930 tók til starfa barnaskóli Jósefssystra í Hafnarfirði. Hann var fyrstu árin í bráðabirgðahúsnæði í eigu Jósefssystra, en árið 1938 var tekið í notkun nýtt skóla- og leikfimihús. Skóli Jósefssystra var rekinn sem almennur barnaskóli til 1961. Þá var honum breytt í föndurskóla fyrir 6 ára börn og yngri, og var hann starfræktur í þeirri  mynd, uns leikskóli systranna og St. Jósefsspítali voru seldir Hafnarfjarðarbæ um áramótin 1987-1988. Árið 1936 tók séra Martin P.H. Vroomen við starfi sóknarprests í Hafnarfirði. (Séra Vroomen gerðist íslenskur ríkisborgari og fékk þá nafnið Marteinn Jakobsson.)

3. Martin P.H. Vroomen, fæddist í Beek (Limburg) í Hollandi 13. ágúst 1906, prestvígður 21. maí 1932 (Montfortprestur), andaðist í Hollandi 21. janúar 1985. Hann var sóknarprestur í Hafnarfirði 1936-1938.

Árið 1939 komu fyrstu þrjár Karmelsysturnar til Hafnarfjarðar, en klaustur þeirra var þá í byggingu. Vegna heimsstyrjaldarinnar síðari fóru þær til Bandaríkjanna og komu ekki aftur fyrr en að stríði loknu árið 1946. Árið 1938 varð séra Gerhard Boots sóknarprestur í Hafnarfirði.

4. Gerhard Boots, fæddist í Hollandi 25. mars 1888, prestvígður í júlí 1913 (Montfortprestur), andaðist  í Hollandi 11. desember 1984. Hann var prestur í Hafnarfirði 1938-1941, 1948-1950 og 1956. Í fjarveru séra Boots þjónuðu tveir prestar sókninni í Hafnarfirði:

Séra Eugene Liedekerken, fæddist 7. september 1907 í Schimmert í Hollandi, gekk í Montfortregluna 1928, prestvígður 16. mars 1935. Hann var prestur í Hafnarfirði 1941-1948.

Séra Philip Aarts, fæddist í Hollandi 22. október 1896 og andaðist í Hollandi 1973. Philip Aarts kom fyrst hingað til lands 1924, þá sem fyrrnefndur bróðir Jósef. Hann fór í prestnám á miðjum aldri og kom síðan aftur til Íslands. Séra Philip Aarts var prestur í Hafnarfirði 1954-1956.

Þegar séra Gerhard Boots lét af störfum, varð séra Sæmundur Vigfússon sóknarprestur á Jófríðarstöðum, fyrsti Íslendingurinn sem því embætti gegnir. Þetta hefur gerst eigi síðar en 1966, en um það eru ekki til skriflegar heimildir.

5. Séra Sæmundur Vigfússon, fæddur í Reykjavík 27. janúar 1926, prestvígður í Róm 20. desember 1961. Hann var prestur í Hafnarfirði líklega til ársins 1970.

6. Séra Hubert Habets, fæddist í Wylre í Hollandi 6. ágúst 1917, gekk í Montfortregluna 1938, prestvígður 19. mars 1945, andaðist í Hollandi 30. mars 1987. Hann var prestur í Hafnarfirði 1972-1983.

7. Séra Hubertus Theodorus Oremus tók við sem sóknarprestur af séra Habets. Hann er fæddur í Zeist í Hollandi 20. júlí 1917. Séra Hubertus Oremus kom til starfa í Hafnarfirði 1978 og var fyrst prestur Karmelsystra en síðan sóknarprestur þar 1983-1988.

8. Séra Hjalti Þorkelsson var sóknarprestur í Hafnarfirði 1988-1998. Hann er fæddur á Hólmavík 21. desember 1943 og var vígður til prests í Kristskirkju, Landakoti, 23. júlí 1983. Á þessu tímabili var ný kirkja (Jósefskirkja) reist á Jófríðarstaðalandi, og vígði Alfreð Jolson biskup hana ásamt safnaðarheimili og prestabústað 3. júlí 1993.

9. Séra Patrick Breen var sóknarprestur í Hafnarfirði 1998-2000. Hann er fæddur í Dublin á Írlandi 28. október 1951 og var vígður í Thurles 11. júní 1983.

10. Séra Jakob Rolland var sóknarprestur í Hafnarfirði 2000-2006. Hann er fæddur í Elsass í Frakklandi 20. september 1956 og var vígður í Freiburg í Þýskalandi 15. maí 1983. Auk sóknarprestsins hefur annar prestur löngum búið í Hafnarfirði til að þjóna Karmelsystrum.

11. Séra Lucio Atanasio Ballester frá 2. september 2007 er hann núverandi sóknarprestur í Hafnarfirði. Hann er fæddur í Buenos Aires í Argentínu 20. september 1972 og var vígður í La Plata í Argentínu 9. ágúst 2001.

You are here: