Like Our Facebook Page

Follow Our Tweets

Guðfræði og Trúfræðsla

 

Af hverju tilbiðja kaþólskir Maríu Mey?

Kaþólskir tilbiðja ekki Maríu Mey, heldur tigna hana sem móður Guðs, Sonarins Jesú Krists. Að tigna og að tilbiðja er tvennt ólíkt. Að tigna er að heiðra manneskju, sem á ekkert skylt við að tilbiðja Guð Almáttugan, Skapara okkar.

Kaþólskir trúa því að María sé sérsköpun Guðs -- full náðar, án syndar vegna hins stórkostlega hlutverks sem henni var ætlað að gegna --að fæða af sér, Son Guðs, fyrir tilstilli Heilags Anda. Líkt og aðrir menn skapaðir af Guði var María undirorpin náð Guðs eins og segir í Heilagri ritningu: "Önd mín miklar Drottin, og andi minn gleðst í Guði, frelsara mínum." (Lk 1:47)

Náð Drottins firrti Maríu allri synd í móðurkviði (full náðar) og greiddi þannig götu hennar til eilífs lífs á himnum. Sú staðreynd að Guð íklæddist holdi manna (Jh 1:1, 14) gefur til kynna að Guð ætlar mönnum að samverka með Kristi, og stefna þannig að eigin sáluhjálp í "ugg og ótta" eins og hl. Páll áréttar.

Í þessu ferli öllu, sem hefst með fæðingu frelsara vors, gegnir María lykilhlutverki, þess vegna tigna kaþólskir Maríu Mey. María var Mey allt til dauða. Engir jarðarbúar geta státað af að vera afkomendur Heilagrar Guðsmóður, því Jesús átti hvorki systur né bræður. Bræður og systur Jesú Krists, sem vitnað er til í Biblíunni, voru blóðskyldmenni, en á þeim tíma tíðkaðist að kalla alla bræður og systur sem voru blóðskyld eins og hefð er enn fyrir meðal ættbálka í Afríku, Austurlöndum og svo framvegis.