Like Our Facebook Page

Follow Our Tweets

Guðfræði og Trúfræðsla

Af hverju tilbiðja kaþólskir brauð?

 

Af hverju tilbiðja kaþólskir brauð?

Brauðið sem kaþólskir tilbiðja í heilagri Messu er, eftir gjörbreytingu, ekki lengur í eðli sínu brauð. Fyrir kraft Guðs og framburð sömu orða, sem Jesús sjálfur mælti við síðustu kvöldmáltíðina, hefur presturinn, sem staðgengill Krists á jörðu, verið kallaður til sömu starfa og postularnir 12.

Eitt meginhlutverk kaþólskra presta felst í því að bera fram einu og sömu krossfórnina, þar sem Kristur endurfórnar sínum himneska Föður krossdauða sínum í óblóðugri fórn, á sama hátt og Kristur sjálfur við síðustu kvöldmáltíðina er Hann gaf fyrirheit um hið allrahelgasta altarissakramenti og gjörbreytti brauðinu og víninu í líkama sinn og blóð og mælti: "Þetta er minn líkami, sem (nú á þessu augnabliki) fyrir yður og fyrir marga verður útgefinn (fórnað). Þetta er mitt blóð, sem (nú á þessu augnabliki) verður úthelt (fórnað) fyrir yður.”

Í samræmi við þessa helgu athöfn Síðustu kvöldmáltíðarinnar er Krossfórnin í kaþólskri Messu því endurnýjuð án blóðsúthellingar í sérhverri Messu, og hún fram borin fyrir alla kirkjuna, fyrir lifandi og liðna. Kristur dó í raun og veru á krossinum; en Hann deyr ekki í heilagri Messu, heldur endurfórnar Hann þar, vor vegna, sínum himneska Föður krossdauða sínum á undursamlegan hátt og biður söfnuðinn að minnast þess að athöfnin fari fram í minningu um það: "Gjörið þetta í mína minningu." segir Hann (sjá Mt 26:26-29; Lk 22:19-21).

Til frekari áhersluauka og áminningar um það kraftaverk gjörbreytingar sem á sér stað í kaþólskri Messu, og hefur átt sér stað allt frá Síðustu kvöldmáltíðinni, áréttar Jesús: "Sannlega, sannlega segi ég yður: Ef þér etið ekki hold Mannssonarins og drekkið blóð hans, hafið þér ekki líf í yður. Sá sem etur hold mitt og drekkur blóð mitt, hefur eilíft líf, og ég reisi hann upp á efsta degi. Hold mitt er sönn fæða, og blóð mitt er sannur drykkur. Sá sem etur hold mitt og drekkur blóð mitt, er í mér og ég í honum. Eins og hinn lifandi faðir sendi mig og ég lifi fyrir föðurinn, svo mun sá lifa fyrir mig sem mig etur."(Jh 6:53-58).

Enn fremur gaf Hann Gyðingum hið sama fyrirheit er Hann á götum úti boðaði gjörbreytingu brauðs og víns í hold sitt og blóð og sagði: “ “Það brauð, sem ég mun gefa yður, er mitt hold, heiminum til lífs.” (6:51-52) Mörgum lærisveinum Hans og öðrum áheyrendum þótti þetta þung ræða og kurr varð meðal þeirra, og margir spurðu sömu spurningar og að ofan greinir “Hvernig getur Hann gefið oss hold sitt að eta?”) Eða, eins og spurt er í dag, “af hverju tilbiðja kaþólskir brauð?”

Líkt og í dag og andstætt trú Abrahams áttu áheyrendur Jesú erfitt með teygja trú sína út fyrir mannlegan skilning og því hurfu margir lærisveinar og Gyðingar frá, en þeir deildu sín á milli vegna þessa boðskapar Krists og voru ekki lengur með honum (Jh 6:66; 6:52). Þessi kurr meðal trúaðra og vantrúaðra gaf tilefni til að Kristur spurði lærisveina sína hvort þeir ætluðu einnig að yfirgefa Hann. Pétur, sem kjörinn hafði verið fyrirliði postulanna, varð fyrir svörum og mælti: "Herra til hvers ættum við að fara? Þú hefur orð eilífs lífs, og vér trúum og vitum, að þú ert hinn heilagi Guðs." (Jh 6:68-70).

Spurningin um að trúa utan mannlegra skynsemismarka, að trúa óskilyrt, er jafngild í dag meðal kristinna manna og hún var á dögum postulanna og því snúa kaþólskir ekki baki við þessum boðskapi Krists, heldur að Altari Guðs í heilagri Messu og meðtaka þar líkama og blóð Jesú Krists í mynd brauðs og víns. Alt frá dögum postulanna til vorra daga, hefur heilög messufórn verið framborin án afláts í kaþólskri kirkju. Staðfestingu á þessari staðreynd og þessum skilningi kaþólskra kennimanna á orðum Krists við Síðustu kvöldmáltíðina má sannreyna í ritum kirkjufeðranna, sem uppi voru frá 1-5 öld. Þar á meðal er Irenæus biskup hinn helgi (dáinn 202), en hann ritar: "Kenning Jesú færði oss nýja fórn; kirkjan fékk hana í arf eftir postulana og ber hún hana fram um alla jörðina." Þessi sama Messufórn hefur haldist óbreytt frá því á dögum Krists og postulanna, á meðan helgi hennar og hátíðleiki hefur í aldanna rás skrýðst æ fegurri lofgjörð, þakkar, friðþægingar og bænarhaldi. Án Messunnar, hins lifandi brauðs, eins og Kristur nefnir það, væri heimurinn löngu liðinn undir lok vegna allra þeirra synda sem þá yrðu hömlulaust drýgðar."

Þegar í Gamla Testamentinu boðar Guð heilaga Messufórn með orðum Malakíasar spámanns: "Frá upprás allt til sólarlags mun nafn mitt mikið verða meðal þjóðanna, og allsstaðar er fórnað nafni mínu til heiðurs og hrein matfórn framreidd." (Mal 1:11). Fórn Malakíasar er fyrirmynd heilagrar messufórnar. Aðeins í heilagri messufórn rætist spádómurinn: "Þú ert prestur að eilífu að hætti Melkísedeks." (Sálm. 109) Hl. Páll postuli minnir enn fremur á að heilagleiki altaris kristinna manna, sé svo mikill að Gyðingar, sem afneitað hafa Kristi sem sínum Messías, hafi ekki leyfi til þess að neyta af því. Eða eins og segir í Heilagri ritningu: “Vér höfum altari (fórnarborð) og hafa þeir, er tjaldbúðinni þjóna ekki leyfi til þess að eta af því". (Heb 12:10)

Enda áminnir hl. Páll að "Hver sem etur brauðið eða drekkur bikar Drottins óvirðulega, verður þess vegna sekur við líkama og blóð Drottins. Hver maður prófi sjálfan sig og eti síðan af brauðinu og drekki af bikarnum. Því að sá sem etur og drekkur án þess að dæma rétt um líkamann, hann etur og drekkur sjálfum sér til dóms." (1 Kor 11:27-30) Varla þarf að árétta að engin, sem etur venjulega brauðsneið etur sér til fordæmingar. (Sjá einnig Rm 11:25 ff. varðandi trúarsamskipti Gyðinga og kristinna manna).