Ert þú frelsaður/frelsuð? Hverju svara kaþólskir?
Kaþólskir geta öðlast vissu um sáluhjálp, því eins og Jóhannes Postuli kveður á um í boðskapi sínum, þá öðlast hver sá eilíft líf sem trúir á nafn Guðs sonar: "Þetta hef ég skrifað til þess að þér vitið, að þér hafið eilíft líf." (1 Jh 5:13, sjá einnig Jh 5:24). En, nota bene, hugtakið að trúa felur ekki aðeins í sér að játa trú með vörunum, heldur þarf hjartað sem stýrir tilfinningum mannsins, kærleikanum, skynseminni og vilja að vera virkur þáttakandi í þeirri trúarjátningu eins og Páll postuli áréttar í skilgreiningu sinni á hugtakinu trú: “Ef þú játar með munni þínum: Jesús er Drottinn og trúir í hjarta þínu, að Guð hafi vakið hann uppfrá dauðum, muntu hólpinn verða. Með hjartanu er trúað til réttlætis, en með munninum játað til hjálpræðis.” (Rm 10:9)
Hvernig getum við annars vitað hvort við höfum trú, eða elsku til Guðs, ef aðeins varirnar játa en trúarjátningu hjartans, sem kristallast í kærleiks verkum okkar og hlýðni við Guð, skortir. Í fyrsta Jóhannesarbréfi greinir Jóhannes einnig eilítið nánar frá því í hverju trúin felst, en þar segir: "því að í þessu birtist elskan til Guðs, að vér höldum Hans boðorð." (1 Jh 5:3 sjá einnig 1 Jh 2:3-6). "Vér vitum, að hver sem af Guði er fæddur syndgar ekki, sá sem af Guði er fæddur varðveitir Hann og hinn vondi snertir hann ekki." (Jh 5: 18. "Og þetta boðorð höfum vér frá honum, að sá sem elskar Guð á einnig að elska bróður sinn." (1 Jh 4:21) Og í framhaldi af því bætir hann við að: "Hver sem drýgir synd heyrir djöflinum til, því að djöfullinn syndgar frá upphafi. Til þess birtist Guðs sonur, að Hann skyldi brjóta niður verk djöfulsins." (Jh 3:8, sjá einnig Kor 6:9).
Páll postuli velkist heldur ekki í vafa um að það að trúa er ekki staðlaus yfirlýsing um trú, heldur felur í sér þá áskorun að elska Guð og náungann í orði og í verki og að afneita syndinni. Því minnir Páll postuli á að gæta þess að efla stöðugt trúfestuna í ugg og ótta við að vanvirða þann Guð, sem sendi Son sinn eingetinn til að boða okkur hjálpræðið og vonina um upprisu að lokinni lífsgöngu. (Fl 2:12; Sjá einnig 1 Kor 9:27, 10:12;Gal 5:1, 4; Fl 3:11-14; 1Tim 4:1, 5:15).
Samkvæmt ofangreindu er því ranghermt að kaþólskir vinni sér leið til himna, heldur eiga verk kaþólskra, samkvæmt kenningum kirkjunnar, að endurvarpa þeirri trú sem inni fyrir býr.