C. Guð skapari himins og jarðar
C.1. Sköpun veraldar, viðhald og stjórn
1. Hvers vegna köllum vér Guða sakpara himins og jarðar?
Vér köllum Guð skapara himins og jarðar vegna þess að hann hefur skapað himin og jörð sem sé allan heiminn. Guð hefur skapað allan heiminn: Hann hefur með almættisvilja sínum myndað hann af engu. Makkabeakonan sagði við yngsta son sinn: “Líttu upp til himins og horfðu yfir jörðina og allt sem þar er og minnstu þess að Guð hefur skapað allt þetta og allt mannkynið af engu”. ( II Makk 7,28)
2. Hvers vegna skapaði Guð heiminn?
Guð skapaði heiminn: sjálfum sér til dýrðar og oss til gagns og blessunar. Heimurinn á að sýna oss almætti guðs, vísdóm hans og gæsku og aðra alfullkomna eiginleika hans: allt þetta á að hvetja engla og menn til þess að vegsama Guð. Á þennan hátt er sköpunarverkið Guði til dýrðar.
Vér eigum að nota allt hið skapaða oss til stundlegra og eilífra heilla. Á þann hátt verður heimurinn oss til blessunar.
3. Hvað gjörir Guð enn stöðugt fyrir heiminn?
Guð ber umhyggju fyrir öllum skepnum sínum og stjórnar öllu með alvisku sinni og mildi. Hér í heimi gjörist ekkert á þess að guð vilji það eða leyfi. Þess vegna segir Kristur: “Eru ekki tveir spörvar seldir fyrir smápening og fellur þó enginn þeirra til jarðar án vilja yðar himneska föður”. (Matth 10,29). Þessi umhyggja Guðs fyrir heiminum er nefnd forsjón Guðs eða viðhald og stjórn heimsins (“Providentia Dei”)
4. Fyrir hverjum ber Guð sérstaklega umhyggju?
Guð ber sérstaklega umhyggju fyrir oss börnum sínum. “Öll höfuðhár yðar eru talin”, segir Frelsari vor (Matth 10,39). Og þess vegna áminnir hann oss einnig: “Verið ekki áhyggjufullir um líf yðar hvað þér skuluð eta, ekki heldur um líkama yðar hverju þér skulu klæðast...Lítið til fugla himinsins, hvorki sá þeir né uppskera og þeir safna ekki heldur í hlöður og yðar himneski Faðir fæðir þá eruð þér ekki miklu fremri en þeir?...En leitið því fyrst guðsríkis og réttlætis hans og þá mun allt þetta veitast yður”. (Matth 6,25-33).
5. Hvernig víkur því við að svo mikið mótlæti er í heiminum þó Guð beri umhyggju fyrir öllum skepnum sínum?
Svo mikið mótlæti er í heiminum: til þess að syndarinn skuli bæta ráð sitt og ekki glatast að eilífu; og til þess að hinn réttláti fái tækifæri til að ávinna sér meiri laun í himnaríki.
5.1. Syndarinn skuli bæta ráð sitt og ekki glatast að eilífu. Þegar bræður Jósefs voru komnir í vanræði sögðu þeir: “þetta sem vér nú verðum að þola áttum vér skilið af því að vér syndugum gagnvart bróður vorum”. ( I Mós 42,21)
5.2. Hinn réttláti fái tækifæri til að ávinna sér meiri laun í himnaríki. Jesús sagði til lærisveina sína: “Sælir eru þeir þá er menn atyrða yður og ofsækja og tala ljúgandi gegn yður allt illt fyrir mínar sakir. Verið glaðir og fagnið því laun yðar eru mikil á himnum”. (Matth 5,11-12)
6. Þar sem Guð skipar og stjórnar öllu í heiminum vill hann þá einnig að hið illa eigi sér stað?
Guð vill eigi að hið illa eigi sér stað hann líður einungis að það gjörist vegna þess að hann hefur gefið manninum frjálsræði og að hann megnar að snúa hinu illa til góðs.
Vér sjáum af sögu Jósefs í Egyptalandi hvernig Guð getur snúið hinu vonda til góðs. Mennirnir álykta en Guð ræður segir málshátturinn.
Lífsregla. Treystu öruggur forsjón Guðs, hann vill þér ætíð vel og eins þegar hann sendir þér mótlætið, hann veit best hvað þér hentar. “Drottinn agar þann sem hann elskar”, segir hl. Páll postuli (Hebr 12,6) og “þeim sem Guð elskar verður allt til góðs”. (Róm 8,28)