Like Our Facebook Page

Follow Our Tweets

Guðfræði og Trúfræðsla

 

B. Hinar þrjár guðdómlegu persónur


1. Eru til fleiri en einn Guð?

Nei, einungis einn Guð er til.

Sjálfur fullyrðir hann hátíðlega: “Ég er Guð og enginn annar er Guð og einn minn líki” (Jes 46,9)


2. Hversu margar persónur eru í Guði?

Í Guði eru þrjár persónur: Faðirinn og Sonurinn og hinn Heilagi Andi.

Þegar Jesús var skírður í Jórdan birtust hinar þrjár guðdómlegu persónu í einu. Nöfn þeirra þekkjum vér af orðum Krists: “Farið og kennið öllum þjóðum og skírið þær í nafni Föðurins og Sonarins og hins Heilaga Anda”. (Matt 28,19).


3. Er hver persónan um sig sannur Guð?

Já, Faðirinn er sannur Guð, Sonurinn er sannur Guð og Heilagur Andi er sannur Guð; en samt sem áður eru hinar þrjár persónur guðdómsins aðeins einn Guð.


4. Hvers vegna eru hinar þrjár persónur taldar að eins einn Guð?

Hinar þrjár persónur eru taldar að eins einn Guð af því að þær hafa eitt og sameiginlegt guðdómseðli.

Vegna þess að hinar þrjár persónur guðdómsins hafa eitt og sameiginlegt eðli þá eru þær jafn eilífar, jafn máttugar, jafn vitrar, jafn miskunnsamar o.s.frv.


5. Hvað nefnum vér þrjár persónur guðdómsins einu nafni?

Vér nefnum þær heilaga Þrenningu eða Þríeiningu.

Þríeiningin er mikill leyndardómur sem vér fáum ekki skilið. Vér verðum að trúa því að hún sé til. Það er líka margt í kringum oss sem vér skiljum ekki þó vér vitum að það eigi sér stað svo sem hið dásamlega líf jurta og dýra. Vér getum því sagt eins og spámaðurinn: “Þú er mikill í ráðum og óskiljanlegur hugum vorum”. (Jer 32,19)


6. Hvað hafa hinar þrjár guðdómlegu persónur gjört fyrir oss?

Guð Faðir hefur skapað oss, Guð Sonur hefur endurleyst oss og Guð Heilagur Andi hefur helgað oss.

Þess vegna er Faðirinn nefndur skapari, Sonurinn endurlausnari eða frelsari og Heilagur Andi helgari. Þó hafa allar þrjár persónur guðdómsins starfað sameiginlega að sköpuninni, endurlausninni og helguninni.


Lífsregla: Biddu ætíð í djúpri lotningu með hinni fögru lofgjörðarbæn: “Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda, svo sem var í öndverðu, er enn, og verður ávallt og um aldir alda. Amen”. Ennfremur skalt þú ætíð signa þig með guðrækni, því með orðum signingarinnar viðurkennir þú trú þína á heilaga þrenningu. Þrenningarhátíðin er haldin fyrsta sunnudag eftir Hvítasunnu.