Kristin fræði
1. Til hvers erum vér á jörðunni?
Vér erum hér á jörðunni til þess að gera Guðs heilagan vilja og komast á þann hátt til himnaríkis.
Einasta takmark vort er: að komast til himnaríkis, til guðs, Föður vors. Það var einmitt það, sem Frelsari vor átti við, þegar hann sagðir við Mörtu: “Eitt er nauðsynlegt” (Lúk. 10,42), og þegar hann sagði við lærisveina sína: “Því að hvað mun það stoða manninn, þótt hann vinni allan heiminn, en bíði tjón á sál sinni?” (Matth. 16,26).
Vegurinn að þessu takmarki er að gera Guðs vilja.
2. Hvers krefst Guð af oss?
Guð krefst af oss að vér
1. trúum,
2. höldum boðorðin,
3. biðjum og meðtökum heilög sakramenti
Trúin sýnir oss takmarkið sem vér eigum að ná og leiðina að því. Haldir þú boðorðin, ert þú á réttri leið, en bænin og sakramentin veita þér nauðsynlegan styrk til þess að rata þessa erfiðu leið til himnaríkis.
3. Um hvað eru kristin fræði?
Kristin fræði eru um:
1. trúna,
2. boðorðin.
3. heilög sakramenti og bænina.
Kristin fræði er nauðsynleg. Þar lærir maður að þekkja Guð, himneskan Föður og lifa samkvæmt hans heilögum vilja.