Bænir
Signingin (Crucis Signo)
Í nafni Föðurins og Sonarins og hins Heilaga Anda. Amen
Drottinleg bæn (Pater Noster)
Faðir vor, þú sem ert á himnum, helgist þitt nafn, komi þitt ríki, verði þinn vilji, svo á jörðu sem á himni. Gef oss í dag vort daglegt brauð, og fyrirgef oss vorar skuldir, svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum, og eigi leið þú oss í freistni, heldur frelsa oss frá illu. Amen
Maríubæn (Ave Maria)
Heil sért þú María, full náðar, Drottinn er með þér, blessuð er þú meðal kvenna og blessaður er ávöxtur lífs þíns, Jesús. Heilaga María, Guðs Móðir, bið þú fyrir oss syndugum mönnum, nú og á dauðastundu vorri. Amen.
Lofgerðarbæn (Gloria)
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda, svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt og um aldir alda. Amen.
Postulleg trúarjátning (Symbolum Apostolicum eða Credo Apostolicum)
Ég trúi
á Guð Föður almáttugan,
skapara himins og jarðar og
á Jesúm Krist,
hans eingetinn Son, Drottin vorn, sem getinn er af Heilögum Anda, fæddur af Maríu mey, leið undir valdi Pontíusar Pílatusar, var krossfestur, dáinn og grafinn, sté niður til heljar, reis á þriðja degi aftur upp frá dauðum, sté upp til himna, situr við hægri hönd Guðs Föður almáttugs og mun þaðan koma að dæma lifendur og dauða.
Ég trúi á Heilagan Anda,
heilaga kaþólska kirkju, samfélag heilagra, fyrirgefningu syndanna, upprisu holdsins og eilíft líf. Amen.
Níkeu trúarjátningin (Symbolum Nicaenum-Constantinopolitanum)
Ég trúi á einn Guð
Föður almáttugan, skapara himins og jarðar, alls hins sýnilega og ósýnilega.
Og á einn Drottin Jesúm Krist,
Guðs Son eingetinn og af Föðurnum fæddan fyrir allar aldir. Guð af Guði, ljós af ljósi, sannan Guð af sönnum Guði, getinn, ekki gjörðan, sameðlis Föðurnum; sem hefur gjört allt.
Sem vor mannanna vegna og vegna sáluhjálpar vorrar sté niður af himnum. Og fyrir Heilagan Anda íklæddist holdi af Maríu mey og gjörðist maður. Hann var einnig krossfestur vor vegna undir valdi Pontíusar Pílatusar, leið og var grafinn.
Og reis upp á þriðja degi samkvæmt ritningunum. Sté upp til himna og situr Föðurnum til hægri handar. Og mun koma í dýrð til þess að dæma lifendur og dauða, og á hans ríki mun engin endir verða.
Og á Heilagan Anda,
Drottinn og lífgara, sem útgengur frá Föðurnum og Syninum, og er tilbeðinn og dýrkaður ásamt Föðurnum og Syninum og hefur talað fyrir munn spámannanna;
og á eina, heilaga, kaþólska og postullega kirkju. Ég játa eina skírn til fyrirgefningar syndanna og vænti upprisu dauðra, og lífs um ókomnar aldir. Amen.










