Like Our Facebook Page

Follow Our Tweets

Welcome to the new Jósefskirkja Webpage

on .

profile pictureWelcome to the new Jósefskirkja Webpage

Starting 1 of April 2012 the www.josefskirkja.com was totally redesign and upgraded to to latest free CMS version of joomla 2.5.x. Also many new good looking ajax features are in place. The website also was redesigned for better google SEO and SEF integration, so it will have a much better google rank and search engine results. Continue reading this article to find out what is new.

  

Páskatilkynningar

on .

Páskatilkynningar St. Jósefskirkju

1. apríl: Pálmasunnudagur
Messan hefst kl. 10:30 með pálmavígslu og helgigöngu.

“Innreið Jesú í Jerúsalem sýnir, hvernig það ríki nálgast, sem konungurinn Messías mun koma á með páskum dauða síns og upprisu.

Helgihald kirkjunnar í kyrruviku hefst með því að minnast þeirrar innreiðar hátíðlega á pálmasunnudag” (TKK § 560).

2. apríl: mánudagur
Tilbeiðsla altarissakramentisins frá kl. 17:15 til 18:15.
Messa kl. 18:30

3. apríl: þridjudagur
Biskupsmessa og olíuvígsla í Kristskirkju, Landakoti kl. 18:00.
Engin messa í St. Jósefskirkju.
Fermingarfræðsla kl. 17:00

4. apríl: miðvikudagur
Barnafræðsla Miðvikudögum kl. 17:00.
Tilbeiðsla altarissakramentisins frá kl. 17:15 til 18:15.
Messa kl. 18:30

5. apríl: fimmtudagur - Skírdagur
Kvöldmáltíðarmessa er kl. 18:30.
Að messu lokinni er tilbeiðsla altarissakramentisins til miðnættis. Við erum beðin að fara ekki strax úr kirkjunni (eða koma aftur seinna) heldur dvelja um stund á bæn.
Skriftatími kl. 20:00–23:00.

6. apríl: Föstudagurinn langi
Lögboðinn föstu- og yfirbótadagur.
Krossferilsbænir kl. 11:00.
Skriftir kl. 12:00 til 14:30.
Guðsþjónusta til minningar um þjáningar og dauða Drottins kl. 15:00.

7. apríl: laugardaginn
Skriftir kl. 10:00 til 12:00.
Páskavaka og páskamessa kl. 22:30

8. apríl: Páskadagur
Páskamessa kl. 10:30.

Krossferilsbæn

on .

Krossferilsbæn
Á föstudaginn langa kl. 11:00

Via Crucis

“Drottinn minn og Guð minn. Undir kærleiksríku augnaráði móður þinnar búum við okkur undir að fylgja þér á götu harmkvælanna, sem voru gjaldið fyrir endurlausn okkar. Við viljum þjást, eins mikið og þú þjáðist, bjóða þér veikburða en iðrandi hjarta okkar, því að þú ert saklaus, og samt munt þú deyja fyrir okkur, sem erum ein um að bera hina sönnu sök. Móðir mín, meyja harmkvælanna, hjálpa mér að taka þátt í þessum beiska tíma, sem sonur þinn vildi dvelja á jörðu, svo að við, sem vorum mótuð úr hnefafylli af leir, mættum að lokum lifa í libertatem gloriae filiorum Dei, í frelsi og dýrð Guðs barna.”

(úr bókinni Via Crucis eftir heil. Josemaria Escriva)

Öskudagur

on .

Öskudagur

Miðvikudagur 22. febrúar

Upphaf lönguföstu. Öskuvígsla og einnig gefst fólki tækifæri til að meðtaka öskukross í messunni.

Messa verður kl. 18:30 í St. Jósefskirkju í Hafnarfirði.

Messa verður kl. 19:00 í St. Barbörukapellu í Keflavík.

Á öskudegi er skylt að fasta.

Leikhopur i Hafnarfirði

on .


Leikhópur í Hafnarfirði

(Playgroup)

Þessum leikhópi er ætlað að mæta þörfum þeirra fjölskyldna sem vilja hittast vikulega með ungabörn og leikskólaaldri til að skemmta sér og læra. Þetta er tækifæri fyrir aðstandendur að tengjast börnunum í gegnum leik.

Leikhópurinn verður staðsettur inni í kirkjunni. Eftir það förum við í leiki sem búið verður að skipuleggja fyrirfram. Leikirnir geta t.d. verið vatnsleikir, leikir með sand, föndur, hreyfiþroskaleikir, hugmyndaleikir, sögustund, tónlist og púsl. Einnig verður frjáls leikur með leikföngum. Í lok hvers tíma verður tónlist og stutt bæn til að þakka fyrir.

Hvar: St. Jósefskirkja · Jófríðarstaðir, 220 Hafnarfjörður

Hvenær: Þriðjudögum, 9:30 – 11:30 a.m.

Taka með: 3 leikföng, smá ávexti og 400 kr.

Hafa samband við: Cynthia Stimming, s. 858 9088

 

http://www.facebook.com/pages/Playgroup-Leikh%C3%B3pur-in-Hafnarfj%C3%B6r%C3%B0ur-Iceland/206808842719459?sk=wall&filter=12